Kristján Guðmunds: Ætlum alltaf að gera æfingar í hálfleik
Kristján Guðmundsson þjálfari Vals var sáttur með spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 3-2 tap gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu í kvöld. ...

Ásmundur Arnarsson: Sáttur með lokaniðurstöðuna
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis var sáttur með 3-2 sigur sinna manna gegn Val í Reykjavíkurmótinu í kvöld. Fylkismenn lentu undir í tvígang en tókst ...

Enski bikarinn: Everton sló Fulham úr keppni
<b>Everton 2 - 1 Fulham</b> 0-1 Danny Murphy ('14 , víti) 1-1 Denis Stracqualursi ('27 ) 2-1 Marouane Fellaini ('73 ) ...

Daði Bergsson: Við vorum lélegir í þessum leik
,,Ég er alveg sáttur með stigið en við hefðum viljað fá þrjú," sagði Daði Bergsson leikmaður Þróttar sem skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn ...

Enski bikarinn: Tottenham vann Watford
<b>Watford 0 - 1 Tottenham</b> 0-1 Rafael van der Vaart ('43 ) ...

 

31.5.2011 07:27
Herrakvöld á laugardaginn !

Núna á Laugardaginn 4.júní ætlar Heklan að halda sérstakt Herrakvöld með upphitunar-ívafi fyrir úrslitakeppni EM U-21 sem hefst þann 11.júní. Dagskráin er glæsileg eins og ávallt þegar eitthvað er um að vera hjá SF Heklu:
Lesa meira..


24.5.2011 15:07
Leikjapistill: SF Hekla – JAI Aarhus (2): 3-1

Laugardagur 21. maí 2011. Hasle Skole.

Efstu tvö lið riðilsins voru mætt til leiks í frábæru veðri á heimavöllinn okkar í Hasle.  JAI menn gátu fyrir þennan leik komist á toppinn með því að sigra sinn leik sem þeir eiga til góða á okkur.  Góður gangur hefur verið í Hekluliðinu í sumar en fyrir leikinn höfðum við unnið 4 leiki, tapað 1 og gert 1 jafntefli. 
Lesa meira..


10.5.2011 12:01
Leikjapistill: SF Hekla - HSV: 4-2

Heklumenn mættu sérlega ferskir til leiks við hádegisbil síðasta laugardag. Formaðurinn og fyrirliðinn var kominn aftur í hópinn eftir viku fjarveru og blés það ferskum vindum um mannskapinn sem brosti út að eyrum í nokkra klukkutíma eftir að þeir sáu hann. 
Lesa meira..


10.5.2011 11:19
Leikjapistill: AKF Aarhus – SF Hekla: 1-2

Við mættum toppliði riðilsins sunnudaginn 1. maí s.l. en AKF voru með 9 stig eftir 3 leiki fyrir þennan leik. Við vorum hins vegar búnir að spila 2 leiki, sigra 1 og 1 jafntefli. Við áttum í smá erfiðleikum með að ná boltanum niður og halda boltanum í byrjun leiks, en það tók smá tíma að venjast vellinum, sem var mjög harður og erfitt að ná boltanum niður. AKF Aarhus reyndu mikið að stinga á framherja þeirra en Gunni og Ömmi stóðu þær sóknir vel af sér og Maggi „sweepaði“ vel í markinu.
Lesa meira..


14.4.2011 21:07
Pókerkvöld á laugardaginn

Jæja kæru herramenn og allir hinir. 


Næsta Heklukvöld verður laugardaginn næstkomandi þar sem við hittumst í fællesnum hans Kidda og tökum eitt klassískt bjórkvöld þar sem fram fer pókermót ásamt allri annarri vitleysu sem Heklumönnum mun detta í hug þetta kvöld. Við spilum leik um daginn klukkan 15:30 og því fínt að hlaða á kolvetnabúskapinn að leik loknum til að líkaminn jafni sig hraðar. Líklegt má telja að bjór-pong verði einnig dregið fram fyrir þá sem detta út úr pókermótinu, svo þeir geti sýnt hæfileikana á öðrum sviðum íþróttalífsins. 
Lesa meira..


Eldri fréttir